Á fjórða tug sóttu um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur

Mikil ásókn virðist vera í embætti dómara ef marka má þann áhuga sem umsækjendur um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sýndu þegar staðan var auglýst laus til umsóknar 17. nóvember síðastliðinn. Á fjórða tug einstaklinga sóttu um embættið en gert er ráð fyrir að skipað verði í stöðuna frá og með 24.janúar næstkomandi, en umsóknarfresturinn rann úr þann 11.desember. Hér að neðan má sjá nöfn þeirra sem sóttu um embættið.
Arnaldur Hjartarson, aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn
Auður Björg Jónsdóttir, hæstaréttarlögmaður
Ásgeir Jónsson, hæstaréttarlögmaður
Ásgerður Ragnarsdóttir, hæstaréttarlögmaður
Bergþóra Ingólfsdóttir, hæstaréttarlögmaður
Bjarni Lárusson, hæstaréttarlögmaður
Bjarnveig Eiríksdóttir, héraðsdómslögmaður
Brynjólfur Hjartarson, lögfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu
Daði Kristjánsson, saksóknari hjá embætti ríkissaksóknara
Guðfinnur Stefánsson, aðstoðarmaður héraðsdómara
Guðmundína Ragnarsdóttir, héraðsdómslögmaður
Guðmundur Örn Guðmundsson, héraðsdómslögmaður
Hákon Þorsteinsson, aðstoðarmaður héraðsdómara
Helgi Sigurðsson, hæstaréttarlögmaður
Hrannar Hafberg, ráðgjafi Fiskistofu
Indriði Þorkelsson, hæstaréttarlögmaður
Ingiríður Lúðvíksdóttir, settur héraðsdómari
Jón Þór Ólason, héraðsdómslögmaður og lektor við Háskóla Íslands
Jónas Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður
Nanna Magnadóttir, forstöðumaður úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál
Ólafur Freyr Frímannsson, héraðsdómslögmaður
Pétur Dam Leifsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands
Ragnheiður E. Þorsteinsdóttir, héraðsdómslögmaður og lektor við Háskólann á Akureyri
Sigurður Jónsson, hæstaréttarlögmaður
Sonja María Hreiðarsdóttir, lögmaður hjá embætti borgarlögmanns
Sólveig Ingadóttir, aðstoðarmaður héraðsdómara
Stefanía Guðrún Sæmundsdóttir, saksóknari hjá embæti ríkissaksóknara
Stefán Erlendsson, héraðsdómslögmaður
Valborg Steingrímsdóttir, aðstoðarmaður héraðsdómara
Þórhildur Líndal, aðstoðarmaður héraðsdómara
Þórir Örn Árnason, héraðsdómslögmaður

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila