Áhersla lögð á góða samvinnu milli Íslands og Grænlands

Það er mikilvægt að eiga gagnkvæm góð samskipti og samvinnu milli Grænlands og Íslands og efla þau enn frekar í framtíðinni. Þetta kom fram í máli Þórdísar Kolbrúnar Reykdal Gylfadóttur á ráðstefnunni Future Greenland – economic independence and political autonomy fram fór á dögunum.  Kolbrún lagði áherslu á góða samvinnu þjóðanna enda væru þær bæði nágrannar og vinir. Í báðum löndunum hefur orðið mikil aukning í ferðaþjónustu en stórauknum fjölda ferðamanna fylgdi mikið álag á innviði hvers konar og þá ekki síst samgöngur og fjarskipti. Tækifæri landanna væru hins vegar mikil og á þeirri vegferð væri mikilvægt að byggja á sjálfbærum lausnum.

Þá ræddi Þórdís Kolbrún formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni en á þeim vettvangi eru metnaðarfull samstarfsverkefni, m.a. á sviði sjálfbærrar ferðamennsku, betri umgengni um auðlindir hafsins og áherslu á ungt fólk á Norðurlöndunum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila