Rauðsokkurnar, kvennabaráttan og villta vinstrið var megin umfjöllunarefni Gunnars Smára Egilssonar og Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Annað Ísland í dag. Rætt var við þá Ragnar Stefánsson og Rúnar Sveinbjörnsson um villta vinstrið og vinstripólitíkina frá ýmsum hliðum. Þá komu þær Guðrún Hallgrímsdóttir, Guðrún Ágústsdóttir og Elísabet Gunnarsdóttir til þess að rifja upp þann tíma þegar rauðsokkurnar börðust fyrir réttindum kvenna af miklu harðfylgi með góðum árangri svo tekið var eftir. Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að neðan.