Sænsk lögregluyfirvöld hafa handtekið mann í tengslum við rannsókn á hryðjuverkaárásinni í Stokkhólmi fyrr í þessum mánuði. Maðurinn sem handtekinn var er grunaður um að vera samverkamaður mannsins sem setið hefur í haldi vegna málsins en rannsókn málsins hefur eins og gefur að skilja verið afar umfangsmikil. Ekki hafa verið gefnar upp frekari upplýsingar um þann handtekna.