Sveitarfélagið Árborg tekur á móti flóttafólki

Ásmundur Einar Daðason og Gísli Halldór Halldórsson við undirritunina

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, gerði á dögunum samning við Gísla Halldór Halldórsson, bæjarstjóra Árborgar, um móttöku flóttafólks frá Sýrlandi.

Í tilkynningu segir að samningurinn lúti að móttöku, aðstoð og þjónustu við fimm flóttamenn á tímabilinu 2019-2021. Fólkið kom til landsins í maí síðastliðinn ásamt 42 öðrum flóttamönnum sem settust að á Hvammstanga og á Blönduósi.

Fólkið er hingað komið fyrir tilstuðlan íslenskra stjórnvalda og Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Er þetta í annað sinn sem Árborg tekur á móti flóttafólki í samstarfi við íslensk stjórnvöld og hefur myndast mikil þekking og reynsla hjá sveitarfélaginu við móttöku flóttafólks.

Íslensk stjórnvöld hafa á undanförnum árum aukið verulega við móttöku flóttafólks í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, sveitarfélög hérlendis og Rauða krossinn á Íslandi, en aldrei hafa jafn margir einstaklingar verið á flótta í heiminum og nú.

Í ár verður í heildina tekið á móti 75 einstaklingum.  Annars vegar flóttafólki frá Líbanon sem kemur frá Sýrlandi og hins vegar flóttafólki frá Kenía sem kemur víðs vegar frá Afríku.

Móttaka flóttafólks hér á landi hefur gengið vel og er um að ræða farsælt samstarf á milli sveitarfélaga, ríkis og Rauða krossins á Íslandi. Ég bind vonir við að svo verði áfram,“ segir Ásmundur Einar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila