Arion banki samþykkir að kaupa 9,5% hlut í bankanum

Arion banki hf. hefur samþykkt tilboð Kaupskila ehf., dótturfélags Kaupþings ehf., um að bankinn kaupi af Kaupskilum 9,5% af útgefnu hlutafé í Arion banka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka. Í tilkynningunni segir að ákvörðunin um kaupin sé í takt við ákvörðun hluthafafundar Arion banka 12. febrúar, þar sem ákveðið var að taka upp í samþykktum bankans tímabundna heimild stjórnar bankans til að kaupa til baka hlutabréf útgefin af bankanum
Fyrirhugað er að uppgjör fram fari þann 21. febrúar 2018. Þá segir í tilkynningunni að tilboð Kaupskila til Arion banka sé háð því skilyrði að uppgjör hafi átt sér stað á milli Kaupskila og íslenska ríkisins varðandi nýtingu Kaupskila á kauprétti 13% hlutar íslenska ríkisins í Arion banka. Hafi  skilyrðinu ekki verið fullnægt á uppgjörsdegi, geti Kaupskil frestað uppgjörsdeginum um allt að tíu daga. Komi til þess að uppgjörsdeginum sé frestað hækkar kaupverð hinna seldu hluta í samræmi við skilmála samnings Kaupskila og íslenska ríkisins. Kaupréttur Kaupskila byggir á samningi við íslenska ríkið frá 3. september 2009.
 Arion banki greiðir 90,087 krónur á hlut sem er sama verð og Kaupskil greiðir íslenska ríkinu við nýtingu kaupréttarins. Heildarkaupverð er rúmlega 17,1 milljarður króna og kemur sú upphæð til frádráttar arðgreiðslu sem samþykkt var á hluthafafundinum 12. febrúar og getur að hámarki verið 25 milljarðar króna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila