Aukin tækifæri til viðskipta milli Íslands og Svíþjóðar

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og Ann Linde, utanríkisviðskipta- og Evrópumálaráðherra Svíþjóðar.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, átti í gær fund með Ann Linde, utanríkisviðskipta- og Evrópumálaráðherra Svíþjóðar, en hún er stödd hér á landi í vinnuheimsókn. Fyrr í dag opnuðu ráðherrarnir nýja lágvarmavirkjun á Flúðum. „Tengsl Íslands og Svíþjóðar eru sterk og norrænu gildin eru grundvöllur náins samstarfs á alþjóðavettvangi,“ sagði Guðlaugur Þór eftir fund þeirra Linde. „Við erum sammála um að tækifæri til aukinna viðskipta milli ríkjanna séu mikil og er jarðvarmastöðin á Flúðum dæmi um það. Hún tvinnar saman sænska tækni og íslenska orku og opnar mikla möguleika á frekari nýtingu á lághitasvæðum.“ Ráðherrarnir ræddu einnig stöðu alþjóðaviðskipta, Evrópusamstarf, útgöngu Breta úr ESB og samstarf Norðurlanda. Lágvarmavirkjunin sem um ræðir er í landi Kópsvatns í Hrunamannahreppi og byggist hún á nýrri sænskri tækni. Verkefnið er samstarf Varmaorku og sænska fyrirtækisins Climeon sem framleiðir búnað til virkjunar lághitasvæða sem áður var ekki hægt að nýta til orkuframleiðslu. Er stefnt á að opna tuttugu slíkar virkjanir á næstu þremur árum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila