Bann við allri mismunun lögfest á Alþingi

Frumvörp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og jafnréttismálaráðherra, um jafna meðferð á vinnumarkaði og jafna meðferð einstaklinga óháð kynþætti og þjóðernisuppruna urðu að lögum frá Alþingi í gær.

Í lögunum er meðal annars kveðið skýrar á um bann við allri mismunun fólks á vinnumarkaði, hvort heldur beina eða óbeina, á grundvelli kynþáttar, þjóðernisuppruna, trúar, lífsskoðunar, fötlunar, skertrar starfsgetu, aldurs, kynhneigðar, kynvitundar, kyneinkenna eða kyntjáningar. Þetta þykir mikilvægt til að stuðla að virkri þátttöku sem flestra á vinnumarkaði en atvinnuþátttaka er talin ein þýðingarmesta leiðin til að koma í veg fyrir félagslega einangrun og fátækt. Við lagasetninguna var höfð hliðsjón af tilskipun Evrópuráðsins um almennar reglur um jafna meðferð á vinnumarkaði og í atvinnulífinu.

Þá voru einnig samþykkt lög um jafna meðferð einstaklinga óháð kynþætti og þjóðernisuppruna þar sem kveðið er á um meginregluna um jafna meðferð einstaklinga á öllum sviðum samfélagsins, utan vinnumarkaðar. Við lagasetninguna var höfð hliðsjón af efni tilskipunar um jafna meðferð óháð kynþætti eða þjóðernisuppruna.

Með hinum nýju lögum er horft til þess markmiðs að stuðla að virkri þátttöku sem flestra í íslensku samfélagi óháð kynþætti og þjóðernisuppruna og koma í veg fyrir félagslega einangrun einstaklinga af sömu ástæðum. Markmiðið er einnig að sporna við því að skoðanir á mismunandi verðleikum kynþátta festi rætur hérlendis.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila