Birgitta boðuð til fundar á Bessastöðum

SONY DSC

Birgitta Jónsdóttir þingflokksformaður Pírata hefur verið boðuð til fundar á Bessastöðum í dag kl.16:00. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forseta íslands. Í tilkynningunni segir að eftir fundinn muni Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands ræða við fjölmiðla en þá mun Guðni væntanlega gera grein fyrir næstu skrefum í stjórnarmyndunarviðræðum flokkanna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila