Bjarni Benediktsson fundaði með lögmanni Færeyja

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Aksel V. Johannesen lögmaður Færeyja.

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, átti í dag fund með Aksel V. Johannesen, lögmanni Færeyja. Á fundi sínum fóru þeir yfir góð samskipti Íslands og Færeyja og ræddu m.a. um stjórnmálaástandið, stöðu efnahagsmála og sjávarútvegs- og viðskiptamál. Farið var yfir ýmsa þætti er varða samskipti landanna, meðal annars mál tengd Hoyvíkursamningnum, samvinnu Íslands og Færeyja og möguleg áhrif fyrirhugaðrar útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu (Brexit). Forsætisráðherra ítrekaði stuðning íslenskra stjórnvalda við umsókn Færeyja að Fríverslunarsamtökum Evrópu (EFTA), en umsókn Færeyja nýtur stuðnings danskra stjórnvalda.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila