Bjarni Jónsson fyrrum framkvæmdastjóri Siðmenntar hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Votlendissjóðs. Votlendissjóðurinn hefur það hlutverk að vinna að endurheimt votlendis í samstarfi við landeigendur, ríki, sveitarfélög, fyrirtæki, félagssamtök og einstaklinga. Fjölmargir sérfræðingar eru í baklandinu og veita sérfræðiráðgjöf eins og Landgræðslan, Landbúnaðarháskólinn, Fuglavernd, Rannsóknarsetur HÍ á Suðurlandi og Náttúrstofurnar, Náttúrufræðistofnun, PWC, Vegagerðin, Háskóli Íslands ofl. Markmið Votlendissjóðs er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda úr náttúru Íslands með endurheimt votlendis. Hlutverk hans er að efla samstarf við landeigendur, ríki, sveitarfélög, fyrirtæki, félagssamtök og einstaklinga