Bjóða fyrrum vistmönnum Kópavogshælis gjaldfrjálsa sálfræðiþjónustu

Velferðarráðuneytið hefur gert samning við Landssamtökin Þroskahjálp um að hafa umsjón með því að fyrrum vistmönnum á Kópavogshæli og aðstandendum þeirra verði boðin sálfræðiþjónusta. Fram kemur í tilkynningu að aðstoðin verði veitt þeim að kostnaðarlausu og getur numið allt að 8 samtölum við sálfræðing. Þá hefur verið samið við sálfræðingana Andrés Ragnarsson og Jóhann Thoroddsen hjá Sálfræðingum Höfðabakka um að annast  þjónustuna en óski fólk eftir því að leita þjónustu annara sálfræðinga verður það heimilt. Fram kemur í tilkynningunni að Landssamtökin Þroskahjálp hvetji alla þá sem dvöldu á Kópavogshæli og aðstandendur þeirra að notfæra sér þá aðstoð sem þeim stendur til boða.

Geta leitað aðstoðarinnar nú þegar

Fyrrverandi vistmenn geta haft samband við Sálfræðinga Höfabakka með því að hringja í 527 7600 eða senda póst á ritari@shb9.is og láta vita af því að beiðnin sé í gegnum Landssamtökin Þroskahjálp  eða haft samband við Landssamtökin Þroskahjálp  í síma   588-9390  tölvupóstur  fridrik@throskahjalp.is.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila