Björgunasveitir sækja slasaðan göngumann í Reykjadal

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru fyrir stundu kallaðar út vegna göngumanns sem slasaðist á fæti í Reykjadal. Maðurinn er ekki talinn mikið slasaður en getur ekki gengið og því munu björgunarsveitir koma manninum til byggða. Samkvæmt upplýsingum er veður skaplegt á svæðinu en rigning og nokkuð kalt. Fyrstu björgunarsveitarmenn munu komast að manninum honum til aðstoðar innan stundar og flytja hann til aðhlynningar á sjúkrahús.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila