Gert er ráð fyrir meiri fjárhagslegum stuðningi við rannsóknir, þróunarvinnu og nýsköpun í nýju frumvarpi fjármála og efnahagsráðherra sem mælt var fyrir á þingi í vikunni. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að að núgildandi viðmiðunarfjárhæðir endurgreiðslna vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar tvöfaldist, hækki úr 300 m.kr. í 600 m.kr. Einnig að hámark á rannsóknar- og þróunarkostnaði til viðmiðunar á frádrætti hækki úr 450 m.kr. í 900 m.kr. þegar rannsóknar- og þróunarvinna er keypt af ótengdu fyrirtæki, háskóla eða stofnun. Verði frumvarpið óbreytt að lögum verður hámarkið t.d. 25% hærra en í Noregi sem er með svipað kerfi og Ísland. Verkefnum sem stuðla að nýsköpun og fá endurgreiðslur úr ríkissjóði fjölgaði úr 283 í 360 milli áranna 2016 og 2017 eftir að viðmiðunarfjárhæðir vegna endurgreiðslnanna voru hækkaðar verulega. Hækkunin hafði einnig þau áhrif að umfang endurgreiðslna stórjókst. Með tvöföldun núgildandi hámarks, líkt og lagt er til í frumvarpinu, er stuðningurinn aukinn enn frekar.