Borgin hefur beina hagsmuni af því að úthluta ekki lóðum til nýbygginga. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Skafta Harðarsonar formanns Félags skattgreiðenda í þætti Guðmundar Franklín Jónssonar í dag en hann var gestur þáttarins ásamt Runólfi Ólafssyni framkvæmdastjóra FÍB. Í þættinum var skattastefnan og skattpíning til umræðu en Skafti segir að sá skattur sem hafi hvað mest áhrif á fólk séu fasteignaskattur og að það sé í raun ekki undarlegt að húsnæðismálin séu eins og þau eru í Reykjavík “ borgin hefur beinan hag af því að úthluta ekki lóðum, enda fer fasteignaskatturinn hækkandi og því hækkar leiguverð í takti við það„.
Fjölmiðlar sem hafa hagsmuni af háum sköttum vilja ekki fjalla um skattpíninguna
Þá bendir Skafti á að lítið sé fjallað um skattpíninguna í fjölmiðlum “ enda eru flestir þeir miðlar í heljargreipum þeirra sem hafa hag af háum sköttum, til dæmis RÚV sem ætti auðvitað að selja enda er það úrelt fyrirbæri í heimi þar sem línuleg dagskrá hefur vikið til hliðar með aukinni tækni„. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.