Costco sækir um leyfi til þess að stækka bensínstöð fyrirtækisins

Verslunarrisinn Costco sem opnaði verslun auk bensínstöðvar hér á landi fyrr í þessum mánuði hefur sótt um leyfi til byggingarfulltrúa Garðabæjar með þeirri ósk að fá að stækka bensínstöð félagsins og að fjölga dælum jaffnframt úr tólf í sextán. Óhætt er að segja að viðtökur íslendinga á komu Costco á íslenskan eldsneytismarkað hafi farið langt fram ú björtustu vonum forsvarsmanna fyrirtækisins og daglega má sjá raðir af bílum við dælurnar þar sem bifreiðaeigendur bíða þess að geta keypt bensín á mun lægra verði en þekkst hefur hér á landi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila