Aukin harka hefur einkennd umræðuhefðina hér á landi að undanförnu og nú er svo komið að dómstóll götunnar er illskeyttari og orðljótari en verið hefur. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Snorra Magnússonar formanns Landssambands lögreglumanna í þætti Markúsar Þórhallssonar í dagþ Snorri segir að oft á tíðum hafi þessi hópur afskaplega hátt af litlu tilefni á samfélagsmiðlum og athugasemdakerfum fjölmiðla “ og gapa um eitthvað sem þeir hafa engar forsendur fyrir að ræða á þann hátt sem þeir gera, þekkja ekki málavexti og hafa jafnvel bara lesið fyrirsagnir fréttamiðla, það er svona tilfinning mín já að aukin harka hafi færst í umræðuna hjá dómstóli götunnar og svo bíða netmiðlarnir eftir smellunum, það er hluti af þessu„,segir Snorri.