Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur blásið af fund hans við Kim Jon Un leiðtoga Norður Kóreu sem átti að fara fram þann 12.júní. Trump segir að hann hafi tekið ákvörðunina í ljósi stórkarlalegra yfirlýsinga Kims og fordæmalausra skapvonskukasta hans í garð Bandaríkjanna og Suður Kóreu að undanförnu. Guðmundur Franklín Jónsson ræddi nýjustu vendingarnar í málinu, auk annara heimsmála í samtali við Arnþrúði Karlsdóttur í síðdegisútvarpinu í dag en hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.