Efla menntaúrræði á Suðurnesjum í kjölfar gjaldþrots Wow air

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að veita 45 milljónum kr. til fyrri hluta aðgerðaráætlunar til að efla menntaúrræði á Suðurnesjum. Aðgerðirnar eru liður í viðbrögðum stjórnvalda við gjaldþroti flugfélagsins Wow Air í lok mars.

Í kjölfar fundar Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra með íbúum Suðurnesja í Reykjanesbæ 2. apríl var stofnaður starfshópur um málið innan mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Hlutverk hans var að móta aðgerðaáætlun er byggði á sýn heimamanna og stjórnvalda og vinna henni brautargengis ásamt því að vakta, greina og miðla upplýsingum um stöðu og þróun mála, með sérstakri áherslu á greiningu á aðstæðum þeirra hópa sem verst stæðu.

Markmið aðgerðaáætlunarinnar er:
· að aðgengi að námi á öllum skólastigum sé tryggt
· að þjónustu við fólk með annað móðurmál en íslensku sé tryggð
· að ekki verði fall í þátttöku barna og ungmenna í frístundastarfi, tónlistarnámi og íþróttastarfi
· að sveigjanleiki verði til staðar til að mæta þeim íbúum svæðisins sem þurfa á félagslegri þjónustu, sálgæslu eða náms- og starfsráðgjöf að halda
· að sérstök áhersla verði lögð á að leysa úr athafnaleysi yfir sumarmánuðina m.a. með sumarstarfsemi menntastofnana á svæðinu. 

Í tilkynningu segir að gott samráð sé við fræðsluaðila á svæðinu, svo sem Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Keili, svo og Vinnumálastofnun sem hefur yfirsýn yfir þróun atvinnumála á svæðinu og samsetningu atvinnuleitenda. Þá segir að teknar hafi verið saman verkefnahugmyndir þeirra sem nýst geta ólíkum hópum á svæðinu. Í fyrri hluta aðgerðaáætlunarinnar verður meðal annars áhersla á íþrótta- og æskulýðsstarf sveitarfélaga og frjálsra félagasamtaka, raunfærnimat með náms- og starfsráðgjöf og styttri námslínur og námskeið.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila