EFTA-ríkin þokast nær fríverslunarsamningi við Mercosur

eftaEFTA-ríkin náðu mikilvægum áfanga í Sviss í dag við að þokast nær fríverslunarsamningi við Mercosur-ríkin (þ.e. Brasilía, Úruguay, Argentína og Paraguay) þegar fulltrúar landanna undirrituðu yfirlýsingu sem staðfestir lok undirbúningsviðræðna fyrir gerð fríverslunarsamnings. Gert er ráð fyrir að formlegar fríverslunarviðræður hefjist síðar á þessu ári en til þessa hafa viðræður EFTA-ríkjanna og Mercosur verið á grundvelli samstarfsyfirlýsingar frá árinu 2000.

Það er mikið fagnaðarefni að þessum áfanga sé nú náð en Ísland og hin EFTA-ríkin hafa stefnt að þessu í fjölda ára. Hér er um að ræða einhverjar mikilvægustu fríverslunarviðræður EFTA um langt skeið enda markaðssvæðið gríðarstórt að vöxtum, með um 300 milljónir íbúa. Mercosur-ríkin er það svæði í heiminum þar sem hagvöxtur verður hvað mest í framtíðinni og það eru augljóslega miklir vaxtarmöguleikar fyrir íslenskar útflutningsgreinar,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila