Eftirlit með heimagistingu skilar 80% fleiri leyfisskráningum

Skráðum aðilum með heimagistingu hefur fjölað um 80% eftir að eftirlit með heimagistingu var sett á laggirnar síðastliðið sumar. Eftirlitið sem er starfrækt á vegum Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu sem hefur nú þegar samþykkt 1.860 skráningar á heimagistingu á þessu ári en á öllu síðasta ári var fjöldinn 1.059. Frá miðjum september hefur Heimagistingarvaktin framkvæmt 136 vettvangsheimsóknir á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi og á Suðurnesjum í kjölfar upplýsinga sem fram hafa komið í ábendinga- og frumkvæðiseftirliti með óskráðri skammtímaleigu. Á þessum tíma hefur lögregla stöðvað starfsemi þriggja rekstrarleyfisskyldra gististaða á höfuðborgarsvæðinu og óskað hefur verið eftir lögreglurannsókn og eftir atvikum lokun á átta rekstrarleyfisskyldum gististöðum utan höfuðborgarsvæðisins. Þá hefur 18 málum verið formlega lokið með álagningu stjórnvaldssekta og tugir mála eru til meðferðar vegna brota á skráningarskyldu sem verður að óbreyttu lokið með stjórnvaldssektum. Heildarupphæð fyrirhugaðra og álagðra stjórnvaldssekta vegna umræddra mála nemur um 40 milljónum króna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila