Eigendur íbúðarhúsnæðis gerðir ábyrgir fyrir réttri lögheimilisskráningu

Ný lög um lögheimili og aðsetur og reglugerð um sama efni tóku gildi 1. janúar 2019. Í tilkynningu segir að markmið laganna sé að stuðla að réttri skráningu lögheimilis og aðseturs á hverjum tíma og tryggja réttaröryggi í meðferð ágreiningsmála er varðar skráningu lögheimilis.
Í lögunum er gerð sú krafa til þinglýsts eiganda fasteignar að hann hlutist til um að skráning lögheimilis einstaklinga sem hafa fasta búsetu í húsnæði hans sé rétt. Gert er ráð fyrir að  þinglýstur eigandi fái senda tilkynningu í pósthólf sitt á Ísland.is um þá sem skrá lögheimili sitt í fasteign í hans eigu. Vanræki eigandi fasteignar ofangreindar skyldur getur það varðað sektum.
Þá verður einstaklingi sem stundar nám erlendis áfram heimilt að hafa lögheimili á Íslandi meðan á námi stendur enda sé hann ekki skráður með lögheimili erlendis á meðan. Námsmanni ber að tilkynna til Þjóðskrár Íslands um námsdvöl erlendis og framvísa staðfestingu um skólavist. Sú breyting hefur verið gerð frá eldri rétti að námsmaður þarf að hafa haft lögheimili samfellt á Íslandi í að minnsta kosti tvö ár áður en nám erlendis hefst. Sama gildir um maka námsmanns og börn sem dveljast erlendis með námsmanni. Þá hefur einnig verið gerð sú breyting að heimild til að hafa lögheimili hér á landi fellur niður að fjórum árum liðnum nema nýrri staðfestingu um skólavist sé framvísað hjá Þjóðskrá Íslands. Berist staðfesting ekki innan tilskilins frests er Þjóðskrá Íslands heimilt að fella niður aðsetursskráningu og skrá lögheimili námsmannsins erlendis.
Einnig verður einstaklingi áfram heimilt að halda lögheimili sínu á Íslandi þrátt fyrir dvöl erlendis vegna veikinda. Gerð er sú krafa að vottorð útgefnu af lækni með starfsleyfi á Íslandi sé framvísað hjá Þjóðskrá Íslands um nauðsyn dvalar erlendis vegna veikindanna og tilkynnt sé um aðsetur erlendis. Þá tekur sú nýbreytni gildi að framangreind heimild er háð því að einstaklingurinn hafi haft lögheimili samfellt á Íslandi í að minnsta kosti tvö ár áður en veikindi hófust, auk skilyrða sem ráðherra getur sett samkvæmt reglugerð. Framangreind heimild gildir aðeins í eitt ár nema óskað sé eftir áframhaldandi aðsetursskráningu hjá Þjóðskrár Íslands.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila