Einn áfram í haldi vegna fíknefnamisferlis og peningaþvættis

Annar mannanna sem setið hefur í gæsluvarðhaldi frá 12.desember vegna umfangsmikillar glæpastarfsemi hér á landi hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Mennirnir tveir sem eru pólskir tengdust pólsku matvöruversluninni Euromarket, en um er að ræða eiganda og framkvæmdastjóra verslunarinnar. Talið er að mennirnir tveir hafi stundað fíkniefnaviðskipti og peningaþvætti. Eins og fram hefur komið var lagt hald á bifreiðar, hátt í tvöhundruð milljónir króna í reiðufé og fíkniefni í kjölfar húsleitar vegna málsins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila