Einn maður er í haldi vegna skotárásar sem gerð var í dag á Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna í Fort Meade í Maryland. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar var skotið á bifreið sem stóð utan við stofnunina. Ekki liggja ljósar upplýsingar fyrir um fórnarlömb árásarinnar en fregnir herma að þrír hafi særst í árásinni. Þá liggja ekki enn fyrir upplýsingar um hver ástæða árásarinnar kunni að vera en unnið er að rannsókn málsins.