Það er staðreynd að ekkert hættuástand í Evrópu hafi verið leyst nema með aðkomu Bandaríkjanna með ýmsum hætti. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Jóns Kristins Snæhólm alþjóða-stjórnmálafræðings í þætti Guðmundar Franklín Jónssonar í dag. Í þættinum ræddu Guðmundur og Jón Kristinn um alþjóðamálin, NATO, Evrópusambandið og afstöðu núverandi ríkisstjórnar Íslands til varnarsamstarfs NATO. Þá fjölluðu þeir um stjórnmálaástandið í Bretlandi og útgöngu breta úr Evrópusambandinu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.