Könnun: rúmlega 90% vilja ekki að farið verði í byggingaframkvæmdir í Elliðaárdal

Elliðaárdalur

Afgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu vilja ekki að farið verði í byggingaframkvæmdir í Elliðaárdal.

Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: 

Vilt þú að farið verði í byggingaframkvæmdir í Elliðaárdal? Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei 90,9%

Já 8%

Hlutlaus 1%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila