Endurskoðar reglugerð til þess að jafna rétt barna

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að láta endurskoða ákvæði reglugerðar um greiðsluþátttöku sjúkratrygginga fyrir tannlækningar og tannréttingar barna vegna afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Ráðherra segir endurskoðun nauðsynlega þar sem gildandi reglugerðarákvæði virðist leiða til mismununar sem sé óverjandi.  Reglugerðin sem um ræðir fjallar um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar.

Málefni barns með skarð í vör sem hefur verið til umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu daga bendir til þess að börn með fæðingargalla sitji ekki öll við sama borð varðandi rétt til endurgreiðslu kostnaðar vegna nauðsynlegrar þjónustu: „Reglugerðin virðist leiða til þess að rétturinn til endurgreiðslu ræðst af því hvernig fæðingargallinn er, frekar en að litið sé til afleiðinganna sem hann hefur í för með sér og kostnaðarins sem hlýst af nauðsynlegum fyrirbyggjandi aðgerðum. Þetta kallar á endurskoðun svo unnt sé að jafna stöðu barna í samræmi við það sem er faglega réttmætt og réttlátt í þessum efnum“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila