Engar sannanir liggja fyrir um afskipti Rússa af bandarísku forsetakosningunum og er ekkert sem bendir til afskipta þeirra. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Hauks Haukssonar fréttamanns í síðdegisútvarpinu í gær en hann var viðmælandi Péturs Gunnlaugssonar. Haukur segir málatilbúnað og kærur á hendur einstaklingum vegna meintra afskipta Rússa vera hreina pólitík “ þetta er auðvitað bara hreinn þvættingur og uppskáldað, og það liggja engar sannanir fyrir. svo er þetta blásið upp af Hillary Vlinton og vinum hennar„,segir Haukur.