Enn er óvissa um framhald um stöðu mála í Öræfajökli og eftir fund viðbragðsaðila var ákveðið að óvissustig yrði áfram í gildi. Eins og kunnugt er hefur jarðhitavirkni í jöklinum aukist að undanförnu sem ekki hafa fundist skýringar á og hafa menn unnið sleitulaust að rýmingaráætlun sem kynna átti á fundi með íbúum á svæðinu í dag. Fundinum hefur hins vegar verið frestað vegna veðurs og því verður áætlunin kynnt því með stafrænum hætti. Þá verður haldinn stöðufundur viðbragðsaðila síðdegis þar sem farið verður yfir niðurstöður mælinga sem gerðar hafa verið á síðustu dögum.