Mikil reiði ríkir í Ástralíu og Nýja Sjálandi eftir að Recep Erdogan forseti Tyrklands lýsti því yfir s.l. mánudag vegna hryðjuverkaárásarinnar í Nýja Sjálandi að allir sem kæmu til Tyrklands með andmúslímskar skoðanir yrðu sendir tilbaka í líkkistum ”eins og gert var við afa þeirra og ömmur” í stríðinu við Gallipoli ár 1915. Ástralski forsætisráðherrann Scott Morrison krefst þess að ummælinn verði tekin tilbaka og kallaði til sín sendiherra Tyrklands í Ástralíu. Segist Morrison ”ekki samþykkja þær afsakanir sem settar voru fram“ og núna mun Ástralía athuga að draga inn ferðir til Tyrklands. Kosningar eru framundan í Tyrklandi og fréttir hafa borist um að Erdogan sýni á kosningafundum myndina sem fjöldamorðinginn tók og sendi í beinni þegar hann myrti saklaust fólk við bæn í mosku í Christchurch Nýja Sjálandi. Segir Erdogan þetta dæmi um ”kristið hryðjuverk”, ”vaxandi íslamafóbíu” og hatur Vesturlanda á tyrkneskum múslímum. Erdogan krefst þess að Nýja Sjáland taki aftur upp dauðarefsingu. Forsætisráðherra Nýja Sjálands Jacinda Ardern sendir utanríkisráðherra Nýja Sjálands til Tyrklands til að mótmæla yfirlýsingum Erdogans.
Erdogan: Þeir sem koma til Tyrklands og eru á móti múslímum „verða sendir tilbaka í kistum eins og afar þeirra og ömmur”
44 þúsundir Ástralíubúa og NýSjálendinga féllu í stríðinu við Gallipoli Tyrklandi 1915 og 97 þúsund særðust. Árlega er haldið upp á ”Anzac-daginn” en Anzac er stytting á heiti ástralska og nýsjálenska hersins sem steig í land 25. apríl 1915 við Gallipoli. Tap Osmanska ríkisins varð mikið, 87 þúsund manns féllu og 261 þúsund særðust. Árásarliðið fór frá vettvangi án sigurs um 9 mánuðum seinna. Sjá nánar hér og hér.