Það er mikilvægt að íslenskur almenningur berjist fyrir tilveru sinni og láti ekki hagsmunaaðila vaða yfir sig á skítugum skónum. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Sólveigar Önnu Jónsdóttur frambjóðanda til formannsembættis Eflingar og Vilhjálms Birgissonar formanns Verkalýðsfélags Akraness í síðdegisútvarpinu í dag en þau voru gestir Péturs Gunnlaugssonar. Sólveig segir að almenningur eigi í orrustu við hörð hagsmunaöfl sem hlífi engu og nauðsynlegt sé að taka á þeim öflum “ ég fullyrði að við séum að berjast við mjög harðsvírað auðvald, hagsmunaöfl sem eru mjög sterk, það að við ætlum að vera bara svona feimin við að sýna hvers við erum megnug, hljómar bara ekki rétt í mínum huga„.segir Sólveig. Hlusta má á þáttinn hér að neðan.