ESA telur íslensk lög um innflutning á vörum úr eggjum og mjólk brjóta gegn EES

oreo3Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) birti í gær rökstutt álit sitt þess efnis að gildandi lög á Íslandi, sem leyfisbinda og setja tilgreind skilyrði fyrir innflutningi á vörum úr eggjum og mjólk, séu ekki í samræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum.  Markmiðið með umræddum lagareglum hérlendis er að verjast sjúkdómum, t.d. vegna salmonellu og listeríu auk annarra sjúkdóma sem geta borist á milli manna og dýra, og tryggja þannig góða stöðu Íslands í þessu tilliti. Í niðurstöðu ESA kemur fram að Íslandi sé veittur tveggja mánaða frestur til að bregðast við áliti ESA en samkvæmt upplýsingum yfirvalda muni atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið svara niðurstöðunni innan þess tíma.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila