Evrópusambandið rígheldur í breta og gerir allt til þess að torvelda úrsögn landsins úr bandalaginu. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðmundar Franklín Jónssonar viðskiptafræðings í þættinum Heimsfréttir, fréttir og fréttatengt efni af erlendum vettvangi í dag en hann var viðmælandi Arnþrúðar Karlsdóttur. Guðmundur bendir á að miðað við hversu erfitt það hefur verið fyrir breta að ganga úr sambandinu get menn rétt gert sér í hugarlund hvernig staða það væri fyrir Ísland að ætla að ganga út ef það væri hluti af sambandinu. Þá fjallaði Guðmundur um orkupakkamálið umdeilda og auðvitað voru nýjustu fréttir úr Hvíta húsinu á sínum stað. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.