Eygló gefur ekki kost á sér í komandi kosningum

Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi félagsmálaráðherra.

Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi félagsmálaráðherra ætlar ekki að gefa kost á sér í komandi þingkosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eygló sem hún sendi fjölmiðlum í morgun. Í tilkynningunni segir Eygló meðal annars “ Árangurinn af vinnu við efnahagslega endurreisn íslensks samfélags hefur verið mikill. Þar hef ég verið stolt af baráttu okkar framsóknarmanna gegn skuldum, hvort sem það eru skuldir heimilanna eða sá skuldaklafi sem erlendir kröfuhafar vildu hengja á þjóðarbúið.   Ég er jafnframt einkar stolt af að hafa sem félags- og húsnæðismálaráðherra komið á nýju húsnæðiskerfi, bætt hag lífeyrisþega og unnið gegn ofbeldi í íslensku samfélagi. Ég hef lengi verið sannfærð um að þingmennska á ekki að vera ævistarf og talað fyrir stjórnarskrárbreytingum um að hver þingmaður sæti ekki lengur en átta ár samfellt á Alþingi.  Í nóvember 2017 verða þau ár orðin níu hjá mér.   Því tel ég rétt á þessum tímapunkti að láta staðar numið og leita nýrra og skemmtilegra ævintýra á öðrum vettvangi„.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila