Stjórn Félags leigjenda hjá Félagsbústöðum hefur sent frá sér tilkynningu þar því er fagnað að stjórn Félagsbústaða ætli að taka til endurskoðunar rekstur og framkomu Félagsbústaða gagnvart leigutökum. Í tilkynningunni segir að ljóst sé að róttækra aðgerða sé þörf til þess að skapa traust á milli leigjenda félagslegs húsnæðis í Reykjavík og borgarinnar og stofnana hennar „ Léleg fjármálastjórn Félagsbústaða er aðeins eitt merkið um vondan rekstur. Önnur merki eru samskiptavandi milli leigjenda og skrifstofu félagsins, slæmt viðmót starfsfólks og mikill dráttur á að öllum erindum, stórum sem smáum, sé sinnt. Það er mat stjórnar Félags leigjenda hjá Félagsbústöðum að vonda fjármálastjórn, jafnt sem lélega þjónustu við leigjendur og slæmt viðmót, megi rekja til þess að Félagsbústaðir voru ekki stofnaðir til að halda utan um góða félagslega þjónustu heldur til að verða eins og hvert annað leigufyriræki á markaði, samskonar
fyrirtæki og þeir leigjendur sem sækja um félagslegt húsnæði á vegum borgarinnar eru að flýja„,segir í tilkynningunni.