Fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun í dag fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur sakborningum í Æsustaðamálinu en eins og kunnugt er eru mennirnir grunaðir um að hafa orðið karlmanni að bana á bænum Æsustöðum í Mosfellsdal í byrjun þessa mánaðar. Lögregla telur sig hafa nokkuð glögga mynd af atburðarrásinni sem leiddi til dauða mannsins en játning liggur þó enn ekki fyrir í málinu.Gæsluvarðhald yfir mönnunum tveim átti að renna út í dag en eins og fyrr segir hefur lögregla ákveðið að óska eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila