Fegurðardrottningar mega vera feitar

fegurdardrottningarAfgerandi meirihluti þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun Útvarps Sögu eru á þeirri skoðun að fegurðardrottningar megi vera feitar. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring. Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt: Mega fegurðardrottingar vera feitar?. Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já 70,92%
Nei 19,46%
Hlutlaus 9,62%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila