Fjallað var um tilraunaverkefni um innleiðingu jafnlaunastaðalsins á morgunverðarfundi um launajafnrétti í dag. Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, opnaði á fundinum nýja vefsíðu staðalsins en hún er meðal afurða tilraunaverkefnisins og þar sem birtar eru ítarlegar upplýsingar um staðalinn og notkun hans.
Staðallinn er sagður tryggja faglegri vinnubrögð sem fyrirbyggi hvers konar mismunun auk þess sem hann nýtist atvinnurekendum til að bjóða starfsfólki réttlátari og gagnsærri launastefnu.
Á síðunni; www.velferdarraduneyti.is/jafnlaunastadall, má fræðast um forsögu verkefnisins og fá svör við algengum spurningum um ferli innleiðingar, verkfærakistu sem þróuð hefur verið til að auðvelda atvinnurekendum verkefnið og upplýsingar um námskeið um starfaflokkun, launagreiningar, gæðastjórnun og skjölun upplýsinga.
Þar má einnig skoða jafnlaunamerkið sem veitt verður þeim vinnustöðum sem hljóta faggilda vottun á jafnlaunastaðlinum af viðurkenndri vottunarstofu.
Haustið 2014 efndi aðgerðahópurinn í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands til hönnunarsamkeppni um jafnlaunamerki og bar tillaga Sæþórs Arnar Ásmundssonar sigur úr býtum.
Í umsögn dómnefndar sagði: „Í merkinu má sjá mynd sem sýnir skífurit, stimpil, rúnir og brosandi andlit tveggja ólíkra einstaklinga. Í lögun minnir merkið á mynt eða pening og gefur þannig til kynna að einstaklingarnir sem þar sjást séu metnir jafnir að verðleikum. Merkið býður upp á alþjóðlega notkun, er einstakt og lýsandi fyrir verkefnið.“ Aðgerðahópurinn fól Sæþóri einnig það verkefni að útfæra jafnlaunamerkið sem grip sem fyrirtæki og stofnanir sem hlotið hafa jafnlaunavottun fá afhent til varðveislu. Fram kemur í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu að gripurinn vísi ekki eingöngu til tveggja einstaklinga sem metnir eru jafnir að verðleikum heldur einnig til gagnsæis launastefnu viðkomandi stofnunar eða fyrirtækis.