Félagsmálaráðherra kynnti sér starfsemi Barnaverndarstofu

Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra heimsótti í vikunni Barnaverndarstofu þar sem hann kynnti sér starfsemi hennar hjá Braga Guðbrandssyni forstjóra stofunnar og öðrum starfsmönnum stofnunarinnar.
Meðal þess sem fjallað var um á fundinum var stjórnsýsla barnaverndarmála, helstu úrræði í málaflokkinum auk þess sem rakin var í grófum dráttum saga Barnaverndarstofu frá stofnun hennar árið 1995.
Ásmundur Einar sagði áhugavert fyrir sig að kynna sér þessa starfsemi, ekki síst þar sem hann muni í embætti sínu sem ráðherra leggja mikla áherslu á málefni barna, ekki aðeins þau mál sem heyra undir Barnaverndarstofu, heldur málefni barna í víðu samhengi og bættar aðstæður barna sem þurfa stuðning. Hann ræddi sérstaklega um mikilvægi snemmtækrar íhlutunar og stuðning við barnafjölskyldur. Með ráðherra í heimsókninni voru þær Anna Lilja Gunnarsdóttir ráðuneytisstjóri og Guðríður Bolladóttir lögfræðingur í velferðarráðuneytinu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila