Finnskri menningu gerð skil í Hofi á Akureyri

Menningarfélag Akureyrar stendur fyrir finnskri menningarhátíð í menningarhúsinu Hofi á Akureyri 16-22.október næstkomandi í tilefni af aldarafmæli finnska lýðveldisins. Sett hefur verið saman glæsileg dagskrá af því tilefni en meðal þess sem boðið verður uppá er upplestur úr finnskum bókmenntum Þá munu finnskir tónlistarmenn spila fyrir gesti auk þess sem matarmenningu finna verður gerð góð skil með því að bjóða gestum að bragða á finnskum kræsingum. Fjölmörg fleiri atriði verða á hátíðinni sem hefst sem fyrr segir þann 16.október.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila