Fjallað um ógnir, öryggismál og kynjajafnrétti á leiðtogafundi NATO

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ásamt Gretu Horgen, prótokóll hjá NATO, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra og Önnu Jóhannsdóttur, fastafulltrúa Íslands í NATO.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sótti leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel sem lauk formlega í dag. Á fundinum var meðal annars fjallað um framlög til varnarmála, fjölþátta ógnir, netöryggi, stöðu mála í Miðausturlöndum og samskiptin við Rússland og Norður-Kóreu.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ræddi um framlög Íslands til varnarmála og nauðsyn þess að efla þróunaraðstoð og mannúðaraðstoð og stuðning við flóttafólk. Þá ræddi hún sérstaklega um mikilvægi kynjajafnréttis fyrir frið í heiminum og þær ógnir sem stafa af loftslagsbreytingum. Hún gerði afvopnun að sérstöku umtalsefni, sérstaklega kjarnorkuafvopnun. Að loknum fyrri fundi leiðtoganna var vinnukvöldverður þar sem einnig voru leiðtogar Finnlands og Svíþjóðar, auk forseta Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og forseta Leiðtogaráðs Evrópusambandsins.
Katrín Jakobsdóttir segir heiminn standa frammi fyrir óhefðbundnum ógnum í nútímanum: „Mér fannst mikilvægt að nálgast öryggismál á breiðum grunni þar sem ógnir nútímans eru síður en svo hefðbundnar hernaðarógnir. Þær kalla á nýjar lausnir þar sem mikilvægast er að stuðla að friði með því að efla jöfnuð og jafnrétti, berjast gegn loftslagsbreytingum og leita friðsamlegra og pólitískra lausna í erfiðum deilumálum. Friðsamlegri heimur hlýtur að vera markmið okkar allra.“
Á sama tíma fór fram sérstakur vinnukvöldverður utanríkisráðherra NATO ásamt leiðtogum samstarfsríkja NATO (Írak, Jórdanía og Túnis).
Leiðtogafundurinn hófst á miðvikudag og lauk sem fyrr segir í dag. Gestgjafi fundarins var Charles Michel, forsætisráðherra Belgíu. Í sendinefnd Íslands voru auk forsætisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands gagnvart NATO, og embættismenn frá forsætis- og utanríkisráðuneytum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila