Sjálfbærni í ferðaþjónustu á Norðurlöndunum er umfjöllunarefni nýrrar skýrslu sem komin er út á vegum norrænu ráðherranefndarinnar. Eins og kunnugt er hefur fjölgun ferðamanna verið mikil á Norðurlöndum undanfarin ár. Fjöldi gesta hefur aukist verulega á vinsælustu ferðamannastöðunum og leitt af sér álag á viðkvæma náttúru og opinbera innviði auk þess sem fjölmörg dæmi eru um kostnaðarsamar björgunaraðgerðir vegna ferðamanna sem lent hafa í hættu. Til að bregðast við þessu hafa margir viljað nýta hagræn stjórntæki til að tryggja sjálfbæra þróun ferðaþjónustunnar. Í skýrslunni er hins vegar bent á að á Norðurlöndunum geti til dæmis réttur almennings til aðgengis að náttúrunni takmarkað möguleika á að koma á aðgangsgjöldum í ferðaþjónustu. Þá er bent á í skýrslunni að sjálfbær þróun í ferðaþjónustu krefjist heildrænnar nálgunar sem taki tillit til umhverfislegra, samfélagslegra og efnahagslegra þátta með langtímahugsun að leiðarljósi. Höfundar skýrslunnar leggja til ákveðnar breytingar sem snúa meðal annars að notkun hagstjórnartækja í bland við sveigjanlegar stjórnunaráætlanir sem virkja breiðan hóp haghafa, lagasetningu og beitingu annarra stjórntækja hins opinbera. Smelltu hér til þess að skoða skýrsluna