Fjármálalæsi íslenskra nemenda metið í PISA árið 2021

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur ákveðið að Ísland verði með í valkvæðum hluta PISA-könnunarinnar árið 2021 sem snýr að fjármálalæsi 15 ára nemenda. Tilgangur þessa hluta PISA er að meta hæfni nemenda til að beita fjármálalegri þekkingu sinni og leikni í raunverulegum aðstæðum, þ.m.t. að taka fjármálalegar ákvarðanir.
Fjármálalæsi er grunnfærni sem er mikilvæg samfélagi okkar. Ljóst er að gott fjármálalæsi skilar sér í betri ákvarðanatöku einstaklinga í fjármálum og stuðlar að fjármálastöðugleika. Ég tel brýnt að íslensk ungmenni taki þátt í fjármálalæsi í PISA-könnunni og því hefur þessi ákvörðun verið tekin,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.
PISA er umfangsmikil alþjóðleg langtímarannsókn á vegum OECD á hæfni og getu 15 ára nemenda í lesskilningi, læsi á náttúrufræði og læsi á stærðfræði. Fram kemur í tilkynningu að auk þessara kjarnagreina geti löndin valið um að taka þátt í nokkrum viðbótarkönnunum sem eru annað hvort í formi spurningalista eða prófs. Fjármálalæsi er eitt af þessum valkvæðu sviðum og hefur verið í boði síðan árið 2012. 15-18 lönd hafa tekið þátt í þeim hluta PISA-könnunarinnar.
PISA könnunin sem nær til yfir 80 þjóða er eina alþjóðlega samanburðarrannsóknin á frammistöðu menntakerfisins sem fram fer hér á landi. Könnunin er lögð fyrir á þriggja ára fresti með mismunandi áherslur hverju sinni.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila