Fjórir grunaðir um akstur undir áhrifum vímuefna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fjóra einstaklinga í gærkvöld og nótt sem grunaðir eru um að hafa verið að aka undir áhrifum vímuefna. Athygli vekur að þrír þeirra sem teknir voru voru undir áhrifum annara fíkniefna en áfengis. Þá hafði lögregla afskipti af fjórum öðrum einstaklingum sem grunaðir eru um að hafa haft í fórum sínum ætluð fíkniefni. Mál þeirra verður sett í viðeigandi farveg.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila