Flokkur Fólksins vill að íslendingar hafi óskoruð yfirráð yfir eigin landamærum og því sé það vilji flokksmanna að tekið verði upp vegabréfaeftirlit hér á landi. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Ingu Sæland formanns Flokks Fólksins í síðdegisútvarpinu í gær en hún var gestur Arnþrúðar Karlsdóttur. Inga segir flokkinn vera tilbúinn að skoða þá kosti sem í boði eru til þess að hægt verði að taka upp slíkt eftirlit á ný “ hvort sem það verður í því formi að endurskoða Shengen samkomulagið með tilliti til þess að fá það algjörlega á hreint eða hvort við þurfum að segja okkur úr því, það er bara það nákvæmlega sem við stefnum að og er stefna flokksins„,segir Inga.