Magnús Þór Hafsteinsson ritstjóri, rithöfundur og fyrrverandi þingmaður segir að íslendingar vilji fá að vita hvað felist í Islam. Magnús sem var gestur Hauks Haukssonar í síðdegisútvarpinu í vikunni segir að þetta komi fram meðal annars í því hvað nýjasta bók Magnúsar sem ber heitið Þjóðarplágan islam hafi selst vel „ maður veit aldrei hvernig svona bækur seljast, þetta er náttúrulega umræðubók um pólitík, þungt og erfitt mál og það er ekki á vísan að róa með sölu á svona, en þessi bók hefur selst alveg ákaflega vel, það líka segir manni að það er í okkar samfélagi mikil eftirspurn eftir aukinni vitneskju um þennan nýja sið í landinu og vesturlöndum sem er Múhameðstrú og Islam, það virðist vera eftirspurn og þekkingarþorsti eftir því að vita meira um þessi trúarbrögð„,segir Magnús.