Forkaupsréttur ríkisins í tengslum við frumskráningu Arion banka skilyrtur

Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Kaupþing hafa náð niðurstöðu um framkvæmd ákvæðis afkomuskiptasamningi íslenska ríkisins, Kaupþings hf. og dótturfélags þess Kaupskila
ehf. frá 13. janúar 2016. Í ákvæðinu felst að forkaupsréttur ríkisins við sölu hlutabréfa í Arion banka skuli aðlagaður við skráningu bankans á markað.
Fram kemur í tilkynningu að niðurstaðan feli í sér að forkaupsréttur ríkisins muni verða aðlagaður á þann hátt að hann muni ekki gilda við frumskráningu Arion banka á skipulegan verðbréfamarkað sem Arion hefur tilkynnt um og sölu á hlutum Kaupþings/Kaupskila sem fyrirhuguð er í tengslum við skráninguna. Forkaupsrétturinn mun hins vegar að öðru leyti standa óhaggaður eftir það.
Þá segir að áskilið sé að núverandi hluthafar í Arion banka, sem einnig eru hluthafar í Kaupþingi, muni ekki auka við hlut sinn við frumskráninguna.
Með því sé stuðlað að því markmiði stöðuleikasamninga ríkisins við Kaupþing frá 2016 að félagið losi um hluti sína í Arion banka með skipulegum hætti og í samræmi við samningsskyldur sínar.
Fram kemur í tilkynningunni að söluandvirði þeirra hlutabréfa sem seld verða í tengslum við frumskráninguna verði greitt inn á skuldabréf sem Kaupþing/Kaupskil gaf út í tenglum við stöðugleikasamningana en eftirstöðvar þess nema nú um 29 milljörðum króna. Þá segir einnig að afkomuskiptasamningurinn kveði á um að söluandvirði hlutabréfa Kaupþings umfram andvirði skuldabréfsins skiptist milli ríkisins og Kaupþings í tilgreindum hlutföllum. Að lokum segir í tilkynningunni ap ríkið muni fylgjast grannt með skráningar og söluferlinu og muni tilnefna eftirlitsaðila sem hafi það hlutverk að fylgjast með og hafa aðgang að öllum upplýsingum og gögnum sem varða ferlið.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila