Formleg leit björgunarsveita að Birnu Brjánsdóttur hafin

bjorgunarsveitBjörgunarsveitir hafa verið kallaðar út til leitar að Birnu Brjánsdóttur sem ekkert hefur spurst til síðan aðfararnótt laugardags. Björgunarsveitir munu leita út frá skemmtistaðnum Húrra við Laugaveg en vitað er síðast um ferðir hennar þar. Lögreglan hefur rannsakað hvarf hennar sleitulaust frá því á laugardag án árangurs. Þessa stundina rannsakar lögregla hvort einhhverjar vísbendingar sé að finna í tölvu hennar en hingað til hefur lögreglan ekki fengið neinar áreiðanlegar vísbendingar um ferðir hennar. Í morgun lýsti lögregla eftir ökumanni rauðrar Kia Rio bifreiðar í tengslum við rannsóknina en hann hefur ekki enn gefið sig fram.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila