Forsætisráðherra fundaði með forseta Frakklands í París

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og Emmanuel Macron, forseti Frakklands

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra fundaði á dögunum með Emmanuel Macron, forseta Frakklands, þar sem rædd voru meðal annars góð samskipti ríkjanna, efnahagsmál, jafnréttismál, loftslagsmál og áhrif úrsagnar Bretlands úr Evrópusambandinu. Forsætisráðherra segir það hafa verið sérlega ánægjulegt að skynja áhuga forseta Frakklands á þeim mikla efnahagsárangri sem Ísland hefur náð. Niðurstöður staðalsins Positive Economy Index fyrir árið 2017 voru einmitt kynntar á ráðstefnu þennan sama dag hjá Global Positive Forum í París, en þar er Ísland í 1. sæti.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila