Forsætisráðherra fundaði með Ségolène Royal

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Ségolène Royal sendiherra Frakklands í málefnum norður- og suðurpóls

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, átti fund í gær með Ségolène Royal sendiherra Frakklands í málefnum norður- og suðurpóls. Á fundinum var rætt um góð samskipti og samstarf Frakklands og Íslands, málefni norðurslóða, umhverfis- og loftslagsmál, auk efnahagsmála. Royal er fyrrum loftslags-og umhverfisráðherra Frakklands og er á Íslandi í tilefni af Hringborði norðurslóða (Arctic Circle Assembly).  Þá flutti forsætisráðherra ávarp á hádegisverðarfundi í gær á vegum Munic Security Conference (MSC) um öryggi á norðurslóðum. MSC stendur fyrir hringborðsumræðum í Höfða í dag um öryggi á norðurslóðum, í tengslum við árlegt Hringborð norðurslóða sem hefst í Hörpu í dag 13. október.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila